Svart-Hjálmar og Rakel profile picture

Svart-Hjálmar og Rakel

Ævintýri Svart-Hjálmars og Rakels

About Me

Svart-Hjálmar og Rakel eru atvinnu erkióvinir. Einnig eru þeir krútt. Að eigin mati.

Svart-Hjálmar Guðsteinsson fæddist 30. febrúar árið 1921. Hann vann fyrstu árin sem vikapiltur á skátamótum, en ekki lengur. Í dag langar hann helst að ná heimsyfirráðum yfir Íslandi, og finnst gaman að lesa góðar bækur og drekka kaffi á meðan hann fer í fótabað. Einnig er hann mikill aðdáandi Melrose Place. Hann hatar hins vegar Bevery Hills 90210 og segir það lélega eftirlíkingu af Star Trek.

Rakel Þórhallsson er karlkyns, þótt nafnið gefi annað til kynna. Í raun er þetta karlmannsnafn, og beygist eins og Egill: Rakel um Rakel frá Rakli til Rakels. Hann er mjög viðkvæmur fyrir gríni sem gert er að nafninu hans. Þess vegna mælum við með leiðindakommentum um nafnið hans. Rakel ólst ekki upp, og líður mikið fyrir það í dag. Hann hefur meðal annars starfað að góðgerðarmálum og bananasöfnun, en hvorugt hefur skilað árangri. Helstu áhugamál hans eru frímerkjasöfnun og að stoppa í sokka. En það er leyndarmál. Uss, ekki segja neinum.

Svart-Hjálmar og Rakel bjóða ykkur velkomin á síðuna, og vona að þið deyið.


Layout by:

My Interests

Music:

Member Since: 5/24/2007
Band Members: Svart-Hjálmar Guðsteinsson og Rakel Þórhallsson. Og líka Snæbjörn Atlason, en hann hefur enn ekki látið sjá sig. Tjúba tjúba tjá tjá.
Influences: Hitler, Stalín og Móðir Theresa. Og Robbie Williams.
Sounds Like: Celine Dion.
Record Label: unsigned
Type of Label: None