Beggonology profile picture

Beggonology

I am here for Friends

About Me


Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa eitthvað hérna en af einhverjum ástæðum vaknaði ég í morgun og vissi að stundin hefði runnið upp en seinasta árið hef ég verið með þessa mynd af súrum gúrkum en það er ekki af því að ég álít mig vera súra eða gúrku og ekki heldur af því að ég muni grýta í þig súrum gúrkum ef þú nálgast mig út á götu ég er raunverulega frekar geðgóð heldur sjáðu til var ég með mynd af tómatsósu þar á undan, Heinz tómatsósu til að vera nákvæm, og ástæðan fyrir öllum þessum myndum af mat þar sem ég á að skrifa um sjálfa mig er sú að ég elska nammi nammi mat og sérstaklega súrar gúrkur og tómatsósu, ég er með mjög þroskaða bragðlauka ég veit það en annars hef ég ekkert meir um mig að segja nema að ég á allt of mikið af skóm en flestir þeirra eru úr hjálpræðishernum með gat á botninum svo ég verð alltaf blaut í tærnar ef það rignir eða snjóar svo ég er ekki þessi klassadama með heila skóbotna og svo þykir mér líka appelsínugulur mjög fallegur litur sérstaklega á gluggatjöldum og brauðristum en mig langaði aðallega að koma þessu á framfæri með gúrkurnar.

My Interests

I'd like to meet:



My Blog

Á blússandi júníblús

Þjóðhátíðardagurinn okkar Íslendinga og allir að gera í brækurnar af þjóðarstolti með candyfloss út á kinn, veifandi litlum íslenskum fánum undir angurværum tónum einhverra hinna svínvinsælu sveitabal...
Posted by on Tue, 17 Jun 2008 13:53:00 GMT

Geirfuglinn gengur laus

Geirþrúður Geirfuglsdóttir er farin á stjá. Hún er raunar fremur klaufsk og ófleyg en ætlar samt að fara að gogga í fólk á eftir.Íspoki á augunum og bjór dugir til að lífga við fugla sem ættu að vera ...
Posted by on Sat, 31 May 2008 15:47:00 GMT

Evrópsk sýn áfram gakk!

Nú er ég búin að berjast gegn júróvisjónflugunni hatrammlega seinustu tvö ár, en sama hvernig ég reyni að kremja hana suðar hún í eyrunum, guðar á gluggunum og neitar hreinlega að fljúga á ljós og bre...
Posted by on Wed, 21 May 2008 16:07:00 GMT

Myndir. Photos.

..">Freyr og ElíasFreyr, Elías og Björkmamma ammaPabbi afi
Posted by on Mon, 24 Sep 2007 17:05:00 GMT

Af trúbadorum og sængurveri sem kom í heiminn á Boston í gær

Ég sit sumsé í rólegheitunum uppi í appelsínugula sófanum mínum í náttkjól með sæng að narta í afgang af Pad Thai núðlunum sem ég keypti mér í þynnkudagskvöldmat. Og er að reyna að horfa á bíómynd. ...
Posted by on Sun, 16 Sep 2007 15:12:00 GMT

My younger brothers baby - photos.

Fallegasta fólk í heimi.
Posted by on Tue, 07 Aug 2007 14:39:00 GMT

Syfjuð gömul kona

Mér líður eins og ég sé hundraðogellefu ára. Þetta var löng helgi. Fyrsta vinnuhelgin á Organ á enda en seinasta vinnuvikan hjá Vinnuskólanum framundan. Geisp.Hópurinn minn var valinn fyrirmyndarhóp...
Posted by on Mon, 06 Aug 2007 17:41:00 GMT

My younger brothers baby.

Ég er orðin föðursystir.Vá.Í gær fæddist lítil geimvera með tíu fingur og tíu tær. Fallegasta geimvera sem ég veit um. Hann er 16 og hálf merkur og með sítt að aftan. Við erum öll alveg ógeðslega ó...
Posted by on Sun, 05 Aug 2007 10:03:00 GMT

Fljúgandi salmónellur mega deyja

Ég hata máva. Afhverju?Ég teiknaði ástæðuna:
Posted by on Wed, 04 Jul 2007 08:54:00 GMT

Þau sem eru börn að eilífu

Ég ætla að fara að hátta eins og góðar stúlkur gera klukkan hálftólf á mánudögum. Sigga kom í heimsókn í nokkra klukkutíma áðan og var að fara. Það var gaman að sitja/liggja/rápa/standa og spjalla um...
Posted by on Mon, 02 Jul 2007 17:35:00 GMT