profile picture

58044891

I am here for Networking

About Me


HITT NÝJA VIDEOIÐ! :)
Anna Hlín á 17. júní í mosó!
Dansarar: Brynja og Andrea Malín:
NÝJA VIDEOIÐ!
Danshópur Brynju Péturs á Arnarhóli, 17. júní!
Dansnámskeið Brynju Péturs 2009!
Myndband gert í samvinnu við David Terrazas.

(Myndbandið á youtube ef þú sérð það ekki hér fyrir ofan)
NÝ HIPHOP OG DANCEHALL
NÁMSKEIÐ HEFJAST 8. JÚNÍ!

6 vikna námskeið, 1x í viku = 6.900kr. / 2x í viku = 10.900kr.
Leiðbeinandi: Brynja Pétursdóttir
Staðsetning: ÁRBÆJARÞREK, Fylkisvegi 6 (v. hliðina á Árbæjarlaug).
SKRÁÐU ÞIG með því að senda message og mundu að taka fram
FULLT NAFN, ALDUR, Í HVAÐA HÓP/A og GSM SÍMANÚMER.
Einnig hægt að senda e-mail á [email protected]
og hringja í síma 821-4499

Hópar 8. júní - 15. júlí.

ÁRBÆJARÞREK:
Byrjendur, 12-15 ára: Mánudagar kl. 20-21
Byrjendur, 16-19 ára og 20+: Þriðjudagar kl. 21-22
Framhald, allur aldur: Miðvikudagar kl. 20-21
Þegar þú kemur 2x í viku kemurðu 1x í byrjendatíma og 1x í framhaldstíma. Það er gott til að fá mismunandi áherslur, einnig sniðugt fyrir vanari dansara sem eru að kynnast hiphop og reggae stílunum í fyrsta sinn.

Nýtt á Facebook!
Dansnámskeið Brynju Péturs
Add friend !
KYNNINGARVIDEO!
Kíktu inn í tíma í Árbæjarþreki, þetta eru upptökur frá september-október
námskeiðunum. Brot úr freestylum frá Brynju og Mardísi í lokin:
Hiphop og Reggae show með ILL sólóum frá Brynju og Aldísi.
Dansarar: Brynja, Aldís, Mardís, Malín, Heiðrún og Signý.

HIPHOP DANS
Þú lærir sporin sem hafa mótað og þróað HIPHOP stílinn síðan á níunda áratugnum (1980's) til dagsins í dag (old school - new school). Það hefur verið ákveðin gelding í gangi útum allan heim þar sem hiphop stílnum hefur ekki verið gerð góð skil - þ.e. fólk hefur verið að kenna danstíma sem sagðir eru hiphop en eru í raun með jazz / lyrical dansstíla við hiphop tónlist. Hiphop er menning, dansinn hefur sögu, heilt litróf af sporum sem er mikilvægt að læra til að komast í kynni við stílinn og heilan heim af nýjungum fyrir þá sem ekki þekkja til. Dansarar eru samkvæmir sjálfum sér og sporin sem við lærum eru oft opin fyrir túlkun hvers og eins. Við förum í söguna samhliða dansinum og fáum þannig heildarmynd af stílnum.
Í mínum tímum lærir þú sporin, tæknina, heyrir lögin sem dansarnir/sporin voru gerðir við, kynnist sögunni og lærir ferska og skemmtilega choreografíu í hverjum tíma.
REGGAE / DANCEHALL
Ég nota dancehall sem spin-off frá hiphopinu til að krydda tímana og leyfa ykkur að kynnast einhverju algjörlega nýju - upp úr þurru fáiði smá karabískan fíling með hreyfingum og sporum frá Jamaica. Þetta er lifandi og frumlegur stíll sem er líka alltaf að bæta við sig nýjum dönsum við viss lög alveg eins og í hiphopi. Þykkur bassinn og seiðandi takturinn í lögunum gerir það ótrúlega auðvelt og skemmtilegt að dansa þennan stíl. Mjaðmahreyfingarnar koma sterkast inn, ég kenni ykkur "the wine" sem er einangrunartækni eða "isolations" mjaðma og brjóstkassa. Það nýtist okkur vel í öðrum stílum, til dæmis í waving.
Tímarnir eru opnir ÖLLUM þeim sem vilja eða eru forvitnir, svo það eina sem þú þarft að gera til að tryggja þér smá auka hita í vetur í vinalegu andrúmslofti og skemmtilegum danstímum er að skrá þig og koma að dansa :) !
Opnið bloggið "Um námskeiðin" hér efst á síðunni til að lesa meira um stílana og námskeiðin.
B-Crew í samstarfi við Ragnar Rael.
Dansarar: Brynja, Aldís, Saadia, Mardís, Malín:
Brynja freestyle. Myndband gert af Ragnari Rael:

UPPBYGGING TÍMANNA
Í hverjum tíma er hitað upp með dansi til að kynnast groovinu og stílunum enn betur, því í grunninn eru þetta freestyle stílar - en það þýðir að dansinn byggist upp á frjálsu flæði og tilfinningu fyrir tónlistinni og hreyfingunum. Við förum í spor og/eða tækni þar sem við lærum líka um söguna. Svo er kennd dansrútína við skemmtilegustu lögin og ég legg metnað í að hún sé fersk og funky í hvert sinn, einnig kynnist þið því hvaðan stílbrigðin og áhrifin koma í hverri dansrútínu. Það leiðir okkur stundum í átt að öðrum stílum svo sem locking, waacking, vogueing, boogaloo, popping og magadansi en þaðan fæ ég oft innblástur þegar ég sem dansrútínur. And you know its packed with funk, freshness and flava. Every time.
MARKMIÐ NÁMSKEIÐA
Tilgangurinn er að þið bætið við ykkar stíl einhverju nýju og fersku og fáið meira öryggi í dansi, hvort sem þið eruð að fara að dansa á klúbbnum eða á sviði. Þekking á fleiri stílum gefur öllum dönsurum aukinn styrk. Ef þú ert vanur dansari þá geturðu stækkað við þig og lært meira um stílana í tímunum, framhaldstíminn svíkur engan dansþyrstan :) Í hverju námskeiði förum við í nýja hluti, ekkert námskeið er eins svo að þegar þú heldur áfram ertu alltaf að fara að læra meira.
Opnið bloggið "Um námskeiðin" hér efst á síðunni til að lesa meira um stílana og námskeiðin.

Hiphop danshópur Brynju Péturs á Unglist 2007:
Hiphop danshópur Brynju Péturs á 17. júní 2007:
KENNARARNIR MÍNIR
Buddha Stretch (Elite Force, Mop Top. Frumkvöðull í hiphop dansi, choreografaði fyrir Michael Jackson, Will Smith og Mariah Carey t.d.), Aus Ninja (meðlimur í the legendary House of Ninja og popping krúinu Atomic Hitters. Kennir með Tyrone "the bone" Proctor), Tweetie (Stjórnandi þáttanna Dances from the hood á MTV og hefur dansað með Elite Force, Mop Top ofl.), Tyrone Proctor (original Soul Train dansari, frumkvöðull í Waacking), Suga Pop (Meðlimur í the LEGENDARY Electric Boogaloos), Pop Master Fabel (fyrrv. Vice President Rock Steady Crew), Archie Burnett (Eitt stærsta afl í vogueing og waacking senunni úti) ofl.!
Opnið bloggið "Um Brynju P." hér efst á síðunni til að lesa betur um minn bakgrunn sem dansara og kennara.

Parkin lot pimpin: Brynja, Aldís og Mardís.
Fleiri myndbönd:
Danshöfundur: Brynja Pétursdóttir, nema annað sé tekið fram.
Sýningar / kynningarmyndbönd:
Sýning á Anti-rasista tónleikum 2008 !
B-Crew kynningarmyndband
Brynja og Aldís: Reggae freestyle
Unglist sýningin 2007 !
17. júní sýningin 2007 !
Kynningarmyndband fyrir námskeiðin
Sýning í Ármúla 2007
17. júní sýningin 2006
Freestyle myndbönd og experimental:
Formtaktur. Lokaverkefni í LHÍ. Brynja freestyle og grafík
Brynja freestyle í stúdíói + mjög crappy grafík
Brynja freestyle. Gert af Ragnari Rael
Brynja, Aldís og Mardís: Parkin' lot PIMPIN
Tónlistarmyndbönd:
Nylon: Dans, dans, dans
Spaceman: Put ya hood up
Gaui Ramses og Earmax: Kinkaðu Kolli
Video úr tímum og æfingum í Árbæjarþreki:
Haust 2008: Byrjendur og framhald
Sumar 2008: Æfingar fyrir sýningu og djók
Haust-vetur 2007: Framhald, Low og Yay Area rútínur
Annað:
Brynja og fleiri: Modern magadans *Choreo: Josy Zareen*
Brynja og Rosana: Magadans *Choreo: Saidie og Kyla*
---------------------------------------------
ÍSLENSK HIPHOP TÓNLIST
This is whats up! Ef þú varst í einhverjum vafa...
TÍVOLÍ CHILLOUT
Hafðu samband við Intro ef þú vilt eintak, click here
Tékkaðu á íslensku hiphopi at its finest.
Class B, Dóri DNA, Diddi Fel, StjániheitirMisskilinn, 7Berg,
Bent, Opee ofl. með feit flæði yfir takta frá Intro Beats.

7BERG - REYKJAVÍK
Þetta verður þú að sjá...
Taktur: Ingiemm, Myndband: Siggi Bahama. Af óútkominni plötu 7Bergs:
Of góður dagur til að borga reikninga!

---------------------------------------------

My Interests

I'd like to meet:

ALL DANCERS! And those who are interested :)

My Blog

Sumarnámskeið hefjast 8. JÚNÍ! Upplýsingar og skráning HÉR.

NÝ HIPHOP OG DANCEHALLNÁMSKEIÐ HEFJAST 8. JÚNÍ!6 vikna námskeið, 1x í viku = 6.900kr. / 2x í viku = 10.900kr.Leiðbeinandi: Brynja PétursdóttirStaðsetning: ÁRBÆJARÞREK, Fylkisvegi 6 (v. hliðina á Árbæj...
Posted by on Sun, 07 Dec 2008 21:14:00 GMT

Um Brynju P.

"The best students make the best teachers". Kynnið ykkur þá kennara sem þið lærið hjá því það er mjög mikið um það að hiphopi, og öðrum stílum, séu ekki gerð nógu góð skil. Hiphop kennarar eiga að þek...
Posted by on Fri, 18 Jul 2008 14:24:00 GMT

Einkatímar og sérstök tilefni.

Einkatímar eru alltaf að verða vinsælli fyrir einstaklinga og hópa eða fyrir sérstök tilefni svo sem vinnuhópadjömm, óvissuferðir, gæsun / steggjun - hafið samband við mig fyrir verð.Sérstök tilefni:H...
Posted by on Fri, 18 Jul 2008 01:13:00 GMT

Tækifærisgjöf - Gjafabréf í dans.

Gjafabréf í dansGefðu skemmtilega gjöf!Fáðu fallegt gjafabréf sem gildir á dansnámskeið út árið 2009 og gefurhandhafa kortsins aðgang að brjálæðislega skemmtilegum danstímum.Þú færð gjafabréfið sent h...
Posted by on Wed, 13 Feb 2008 05:31:00 GMT

Lögin sem við dönsum við (downloadið lögunum hér!) NÝTT!

(Ath: Linkarnir á downloadin hætta að virka eftir einhvern tíma, svo þessir gömlu eru líklega útrunnir. But you can try!)Námskeið 8. júní - 15. júlí.Byrjendur: Mims - Move if You Wanna DOWNLOAD!og Big...
Posted by on Tue, 12 Feb 2008 19:54:00 GMT

Sumar 2007, blogg um New York.

Hvað segiði gott skvísur? Ég vildi bara láta vita af mér, allt er búið að vera frábært hérna í New York og ég er nú þegar búin að hitta flesta af mínum all-time uppáhöldum. Til að segja ykkur aðeins ...
Posted by on Thu, 30 Aug 2007 10:57:00 GMT

GRAFFITI EÐA PISS ?

Ég sá ástandið á Laugaveginum og mér fannst ég verða að segja eitthvað. Krotið og taggið sem er útum allt í miðborginni er að fara illa með hiphop menninguna sem mér þykir vænt um. Graffiti er eitt el...
Posted by on Sat, 14 Jan 2006 11:09:00 GMT