HAM profile picture

HAM

About Me


This is not an official site, only a fanpage
Animalia - Live @ Eistnaflug 2008
Musculus Live
Musculus Live
HAM Featuring Björk
Partýbær live
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
HAM var íslensk rokkhljómsveit sem starfaði á árunum 1988 – 1994 og kom svo aftur saman á tvennum tónleikum árið 2001. Síðast kom hún fram á tónleikum 29. júní 2006. Hljómsveitin var í tenglum við Smekkleysuhópinn, og var vel þekkt í íslensku neðanjarðartónlistarsenuni. Hljómsveitin var brautryðjandi í spilun þyngra rokks á Íslandi og meðal fólks sem að spilaði með henni má nefna Dr. Gunni, en hann spilaði á gítar með þeim í nokkra mánuði snemma á ferlinum og Björk Guðmundsdóttir, en hún spilaði með þeim á pípuorgel í kringum tökurnar á Sódómu Reykjavík. Hún tók líka upp nokkur lög með þeim í tengslum við þá mynd. Hljómsveitin náði samt aldrei neinum víðtækum vinsældum á Íslandi á meðan hún starfaði en hefur síðar hlotið almenna viðurkenningu sem mikilvæg hljómsveit í rokksögu Íslands.
Fyrsta hljómplata sveitarinnar var stuttskífan Hold. Platan fékk nær enga spilun í útvarpi og var mjög umdeild. Gert var myndband við lagið „Trúboðasleikjarinn“ en Sjónvarpið brenndi eina eintakið sem til var af því þar sem myndefnið þótti ekki við hæfi.
Útrás sveitarinnar, eða tilraun til útrásar, hófst með því að hún hitaði upp fyrir Sykurmolana á fimm tónleikum í Þýskalandi árið 1988. Árið eftir sendi sveitin frá sér plötuna Buffalo Virgin sem fyrirtækið One Little Indian gaf út. Á eftir fylgdi að spila á tónleikum í New York. Hljómplatan Pleasing The Pirahna var tekin upp árið 1990 en hún kom reyndar aldrei út. Önnur óútgefin plata Ham er platan Pimpmobile að sögn Óttars Proppé í tónlistarspurningarþættinum Popppunkti árið 2004.
Árin 1991 – 1992 tók hljómsveitin þátt í gerð kvikmyndarinnar Sódóma Reykjavík þar sem Sigurjón samdi að auki mestalla tónlistina í myndinni. Það er ekki síst sú mynd sem hefur haldið orðstír sveitarinnar á lofti síðan hún hætti. Saga rokksins kom út 1993 og þann 4. júní 1994 hélt hljómsveitin síðustu tónleika sína á skemmtistaðnum Tunglinu í Reykjavík, þeir tónleikar voru hljóðritaðir og komu svo út á plötunni HAM lengi lifi. Árið 1995 voru áður óútgefnar stúdíóupptökur sveitarinnar gefnar út á plötunni Dauður hestur.
HAM lá svo í dvala allt til ársins 2001 þegar það spurðist út að þýska hljómsveitin Rammstein myndi spila á Íslandi um sumarið, þá komst af stað þrálátur orðrómur um það að Sigurjón hefði einhvern tíma sagt að eini möguleikinn á því að HAM kæmi saman aftur væri til þess að hita upp fyrir Rammstein. Sigurjón neitaði því reyndar að hafa sagt það en engu að síður var ákveðið að kalla hljómsveitina saman á ný. Hún spilaði á skemmtistaðnum Gauki á Stöng þann 14. júní og svo í allra síðasta skiptið (að eigin sögn) þann 15. júní fyrir 5.500 manns í Laugardalshöll einmitt til að hita upp fyrir Rammstein. Tónleikarnir á Gauknum voru svo gefnir út á tónleikaplötunni Skert flog.
Þeir áttu að taka lagið á tónlistarhátíðinni Reykjavík Rokkar sumarið 2006 ásamt The Darkness og Motörhead, en sú tónlistarhátíð féll niður vegna ónógrar miðasölu.
þess í stað boðuðu þeir stuttu seinna til tónleika á skemmtistaðnum NASA í Reykjavík, þann 29. júní. Þar var húsfyllir og Ham liðar tóku gamalt efni í bland við nýtt. Þeir léku einnig á tónlistarhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, á Ísafirði árið 2007. Ham virðist því hafa risið úr dvala sínum.

My Interests

Music:

Member Since: 08/03/2008
Band Members: "Hold" 1988
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Ævar Ísberg - Drums

"Buffalo Virgin" 1989
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Ævar Ísberg - Drums
Hallur Ingólfsson - Drums

"Pimpmobile" (Unreleased) 1990
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Flosi Þorgeirsson - Guitar
Hallur Ingólfsson - Drums

"Saga Rokksins 1988 - 1993" 1993
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Flosi Þorgeirsson - Guitar
Jóhann Jóhansson - Guitar/Keybords
Hallur Ingólfsson
Arnar Geir Ómarsson - Drums
Ævar Ísberg - Drums

"Lengi Lifi" 1994
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Flosi Þorgeirsson - Guitar
Jóhann Jóhansson - Guitar/Keybords
Arnar Geir Ómarsson - Drums

"Dauður Hestur" 1995 (Rec 1991)
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Flosi Þorgeirsson - Guitar
Jóhann Jóhansson - Keybords
Arnar Geir Ómarsson - Drums

"CBGB´s" (live at CBGB´s 1993) 2001
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Jóhann Jóhansson - Guitar/Keybords
Arnar Geir Ómarsson - Drums

"Skert Flog" 2001
Óttarr Proppé - Vocals
Sigurjón Kjartansson - Guitar/Vocals
S. Björn Blöndal - Bass
Flosi Þorgeirsson - Guitar
Jóhann Jóhansson - Guitar/Keybords
Arnar Geir Ómarsson - Drums

Influences: Swans
Laibach
Abba
Íslenskt Brennivín
sviti
Record Label: Unsigned

My Blog

Live Review - Grapewine 2006

I had seen Icelandic rock icons HAM 15 years ago at Fellahellir. I thought they looked like freaks (guess they still do) and I was actually a little bit scared of Óttarr Proppé, who I felt sounded lik...
Posted by on Sat, 08 Mar 2008 10:23:00 GMT

Minningar Flosa Þorgeirssonar

Hér er saga Flosa, þess mikla meistara, en platan Saga rokksins er einmitt tileinkuð honum."Gítarleikari? Nei, það gengur ekki strákar mínir, ég er barasta bassaflón er aldrei hefur slíka gígju snert....
Posted by on Sat, 08 Mar 2008 10:16:00 GMT