Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 profile picture

Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008

ÁFRAM ÍSLAND!

About Me


Borko (feat. Benni Hemm Hemm & Morðingjarnir) - Eiturlyfjafíklar
..
Til hvers - live @ Eistnaflug 2007
..
Lífs(g)æði - live @ Eistnaflug 2007
..
Ætlarðu ekki með? - Feat. Bibbi Innvortis
Áfram Ísland! Algjör sigur
5/5
"Lögin mynda [] góða heild og keyrslan nær manni eins og gott buffhamarshögg í punginn. Hvert lagið rekur annað með hressleika og tudda metal-rokk-pönk-bræðingi. Diskurinn býður upp á allt sem maður leitar að í góðu pönkrokki, ádeilan, ástin, fíknidópið og fyllirí á hlýrabol með spaghettísósubletti. Frumlegheitum plötuumslagsins ber jafnframt að hrósa."
"Ég er þeirrar skoðunar að hér sé búið að enduruppgötva íslenskuna í pönki. Grípandi laglínur, þéttur hljóðfæraleikur og söngurinn, hann bara virkar við tónlistina og skapar skemmtileg blæbrigði í eðaltudda pönk-rokki. Þetta er eiginlega bara rugl skemmtileg plata, sem gjörsamlega svínliggur í fimmta gír á þjóðveginum undir stýri, eða í sveittu rúst-partíi með bjórdælu og góðar græjur. Er þetta ekki að verða komið gott? "
DV
-
Lífið er hryllingsmynd...
Morðingjarnir - Áfram Ísland! ****1/2
"Morðingjarnir snara hér fram frískustu rokkplötu ársins - hingað til a.m.k. Hér fer plata sem brúar glæsilega bil kæruleysislegs stuðpönks sem er keyrt brjálæðislega áfram og melódískari gerðar ræflarokksins, lagasmíðar sem bera með sér ósvikið innsæi í hvernig á að semja grípandi, en þó gargandi, popplög. Andi Pixies og S.H. draums svífur yfir þessum lögum, sem eru þegar best lætur bona fide "hittarar" og límast rækilega við heilann eftir eina, tvær hlustanir.
Mér sýnist að Morðingjarnir losni ekki undan þessari náðargáfu þótt þeir reyndu og miðað við þetta nýtilkomna melódíunæmi verður spennandi að heyra hvert verður farið næst. Að sama skapi rokka drullupönklögin enn harðar en á síðustu plötu, Í götunni minni (2006). Það er því margt með Morðingjunum á þessari vel heppnuðu plötu, sem er töluverð framför frá nefndum frumburði. Hljómur er suddalega góður, kraftmikill og bombarderandi. Bandið er þétt og söngurinn orku- og ástríðufullur. Textar eru þá einkar skemmtilegir, gráglettnar smásögur úr íslenskum veruleika, einhverskonar samfélagslegt raunsæi þar sem hörðum gagnrýnispillum, vel smurðum með gáska og gríni, er skotið út og suður. Stórgott umslagið er af þessum meiði einnig, táknrænt mjög, en það samanstendur af sundurklipptu Íslandskorti þar sem vel til fundnar setningar úr textunum liggja yfir hér og hvar.
Morðingjarnir eru síst að finna upp hjólið á annarri plötu sinni - en mikið óskaplega snúa þeir því skemmtilega."
Arnar Eggert Thoroddsen - Morgunblaðið
-
Áfram Ísland! - Morðingjarnir
"Áfram Ísland! (Go Iceland!) is the second album from the punk threepiece that sprang from Dáðadrengir, a rock/rap band that won the Icelandic version of the battle of the bands a few years back. Morðingjarnir are true to their roots, and play punk to serve the masses. Nothing too complicated, just stuff that makes you want to scream and headbutt someone. More than anything, they evoke memories of the Icelandic cult favorites Innvortis, although international listeners might prefer the tag So-Cal to put them in their respective category. It might be fitting, it is just not as relevant. 14 songs in all, Áfram Ísland! runs smoothly and makes for one of the most positive listening experiences of the year." SBB
Reykjavik Grapevine
-
Morðingjarnir - Áfram Ísland! - 3/5
"Textar Morðingjanna eru margir skemmtilegir. Umfjöllunarefnin eru tekin úr hversdagslífinu, en húmorinn er ríkjandi í úrvinnslunni hvort sem það er verið að syngja um skemmtanalífið, eiturlyfjaheiminn eða Airwaves. Textinn við lagið Airwaves er kostuleg upptalning á hljómsveitum sem spiluðu á hátíðinni í fyrra: „Drekka bjór með Worm is Green/Reykja sígó með Singapore Sling/Far'í partí með Amiina/og kyssa Bloodgroup stelpuna"...
Það er kannski ekki hægt að segja að tónlist Morðingjanna marki djúp spor í tónlistarsöguna. Þetta hljómar allt of kunnuglega til þess. Hins vegar hefur þeim Atla, Hauki og Helga tekist að búa til skemmtilega rokkplötu sem gaman er að blasta á hæsta styrk og það er ekki lítils virði."
Trausti Júlíusson - Fréttablaðið
-
Morðingjarnir - Áfram Ísland
86%

"Áfram Ísland gæti hæglega orðið besta plata ársins! Hrá, öfga hress og lifandi. Morðingjarnir ganga hreint til verks og hika hvergi, þeir hafa ekki eytt tíma sínum í neitt pjatt og pródúsjónir, öll orkan hefur verið sett í hamagang og læti! Og þetta steinliggur hjá þeim. Það er erfitt að reyna að finna einhver fræðileg rök með eða á móti Morðingjunum.... Þetta er jú slísí skítapönk sem gæti fengið Rass til að roðna."
Mónitor
-
"Þvííkur andskotans eðall!"
"Eftir sannfærandi, skemmtilega en ekki sérlega eftirminnilega frumraun sína, Í götunni minni, eru Morðingjarnir komnir aftur á kreik og heldur betur búnir að brýna sveðjurnar. Já, platan sem ég geri að umfjöllunarefni mínu að þessu sinni kallar á nákvæma greinargerð.
Áfram Ísland! hefst á intróstefi sem hljómar eins og millikafli hjá Metallica á Ride The Lightning tímabilinu en svo byrjar alvaran. „Aldrei aftur stuð” er hardkor pönk bomba í anda Dead Kennedys og með þessu lagi eru Morðingjarnir í raun búnir að slá út öll sín fyrri verk. Þvílikur gassagangur og sannfæring!
„Ekki í dag“ er sem óður til húsvíksku sveitarinnar Innvortis. Sem er vel því þeir gefa aldrei neitt út. Ferlega grípandi lag í þægilegu tempói sem foreldrar hljómsveitarmeðlima gætu auðveldlega dillað sér við. En Adam var ekki lengi í paradís. Aftur er það kalifornískur hardkor níunda áratugarins sem vofir yfir í stórgóðu titillagi plötunnar sem Atli bassaleikari sér um að syngja. Þeir gera stólpagrín af íslenskri þjóðrembu en auðvitað er þetta ekkert grín. Svona er þessi þjóð.
Strax á eftir kemur hið rómaða „Eiturlyfjafíklar” sem er svo áheyrilegt að það hljómar eins og ef Stuðmenn hefðu samið pönklag. Alls ekki of pönkað, auðvitað. Lagið er gætt smekklegum Rásar tvö-legum bakröddum. Ég hugsa að það hafi aldrei verið sungið svona heimilislega um volæði eyturlyfjafíkla. Biðin eftir næsta lagi er nokkur sekúndubrot og þá er farið beint í hardkor pönkið sem ég hef nefnt áður. Gríðarlega áhrifamikið að fara úr eldhússöng og vera síðan bundin framan á hraðlest sem nefnist „Hvítt rusl”. Í því er sjúklega hresst viðlag sem verst gefnu aðdáendur Morðingjanna geta sönglað með án nokkura vandræða.
Þegar hér er komið við sögu ættu hlustendur að vera búnir að átta sig á ákveðnu mynstri í lagauppröðununni - fyrst kemur poppað lag, síðan hart, og svo koll af kolli. Og hér erum við komin að einni af perlum íslenskrar tónlistar á þessu ári, „Ég er kominn heim”. Ég get svarið það; það er líkt og hin guðdómlega bandaríska ofursveit Dillinger Four hafi samið þetta lag með Morðingjunum. Þvílíkt lag. Kraftpopp með lúmskasta og mest grípandi viðlagi sem ég man eftir í háa herrans tíð. Við erum að tala um „Með allt á hreinu“-grípandi. Það er sjúkt.
Þetta er eitthvað yndislega íslenskt við „Raddir”. Groddalegt og ágengt lag sem vekur upp minningar um hinu stórkostlegu sveit Sogbletti nema með bjagaðari og þyngri tón. Þyngsta lag plötunnar.
„Drullufullur” og „Er þetta ekki að verða gott?” eru eins og Dead Kennedys langloka. Annað lagið er eins og þegar þeir voru upp á sitt harðasta en hitt leiðir huga manns að surf- og rokkabillískotnu lögum þeirra. Aukinheldur bergmála Langi Seli og Skuggarnir innan téðs lags. Samt er þetta ósterkasta lag plötunnar. Takið eftir að ég nota orðskrípið „ósterkasta“ en það er vegna þess að á Áfram Ísland! eru bara sterk lög. Það er bara misjafnt hversu sterk þau eru. Lesist: hér eru engin lög sem eru „lala“ og því síður uppfyllingarefni.
Annað sem lesendur gætu hafa tekið eftir er hversu oft ég líki Morðingjunum við eldri hljómsveitir. Það þýðir samt ekki að hér sé um eftirhermur að ræða né ófrumleg lög. Það er bara þannig að þeir fara vel með sína áhrifavalda og gera hljóm þeirra að sínum eigin, þannig að Morðingjabragðið verður sterkt. Ég hugsa líka að þeir hafi ekki meðvitað leitað í smiðjur nefndra meistara, slík er kæruleysisáran sem umlykur þessa þrjóta.
„Svona” er svo eins og skrítni frændinn í afmælisboðinu. Ekki af því að hann er svo vandræðalegur, heldur vegna þess að hann er dulur og öðruvísi. Eina lagið á plötunni sem pirrandi, sjálfskipaði tónlistarpekingurinn við hliðina á þér myndi segja að væri nokkuð kúl. Semsagt eitt af lykillögum Áfram Ísland!
„Bölvun fylgi þeim” er tökulag eftir pönksveitinga íslensku F/8 (sem Dr. Gunni var m.a. í) sem sterkt íslenskt bragð er að. Kann ekki að útskýra það en þau sem voru að grúska í jaðarrokki íslands á árunum ‘91 til svona ‘96 vita hvað ég á við. „Þekki þig ekki” er svo enn eitt grípandi rokklagið með mjög töff og áheyrilegum sönglínum. Fín saga sem þeir segja í texta lagsins. Síðasta lag plötunnar er hið rómaða „Airwaves”. Skemmtilegt mjög en mér finnst það einhvernveginn ekki passa við restina af plötunni, líkt og það sé tækifærislag, ef það segir ykkur eitthvað. Ekki að það skipti neinu máli því að þegar þarna er komið á plötunni er Áfram Ísland! búin að tryggja sig í sessi sem eina af bestu íslensku plötum síðari ára.
„Þar hef ég kaffikönnuna
flatskjáinn og fartölvuna
fjölskyldulífið allt í hnút
ég ætla aldrei aftur út
Því ég er kominn heim.“

Ég gæti skrifað jafn mikið eða meira um texta Morðingjanna en það myndi gera þessa gagnrýni ígildi ritgerðar. Ég man ekki eftir ungu bandi sem eru textaskrif jafn í blóð borin og þessum drengjum. Aldrei er orðum aukið en þeir gjörsamlega negla þetta með hnyttnum og beinskeyttum textum sem eru smásögur, samfélagrýni, sjálfsgagnrýni og skemmtilegur spegill á líf fólks sem býr örugglega í stigaganginum þínum, nú eða í götunni þinni. Hér erum við með í höndum plötu sem verður án efa ein af plötum ársins og rúmlega það. Þvííkur andskotans eðall!"
Birkir Fjalar Viðarsson - Stúdentablaðið/Harðkjarni.com

My Interests

Music:

Member Since: 7/20/2005
Band Members: Atli morðingi Haukur morðingi Helgi morðingi
Influences: Dead Kennedys, Slayer, The Smiths, The Buzzcocks, The Decemberists, Megadeth, Tarkio, Metallica, Woody Allen, Innvortis, Pantera, Fugazi, Bad Religion, Les Savy Fav, The Rolling Stones, Fraebbblarnir, The Jam, The Pixies, The Mars Volta, Shellac, Henry Rollins, Purrkur Pilnikk, Aerosmith, The Stone Roses, Televison, Bjork, Death By Stereo, Fear Factory, Madonna, The Clash, Dr. Gunni, The Ramones, Billy Joel, Stevie Wonder, Bad Brains, At the Drive-In, The Buzzcocks, Bruce Springsteen, Bloc Party, Xtc, So-Solid Crew, Megadeth, AC/DC, Iron Maiden, Sex Pistols, Paul Simon, Manowar, Van Morrison, Tom Waits ofl.
Sounds Like: slobbí skítapönk.
Record Label: Kimi
Type of Label: Indie

My Blog

Kimi Records today at 3

Last night at Grand Rokk was great. Thanks everyone!Today we'll play at Kimi Records' headquarters, located in Smiðjustígur (right next door to Grand Rokk). We'll start at 3 o'clock and Borko will als...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Sat, 18 Oct 2008 06:09:00 PST

Grand Rokk tonight

Thanks to everyone that attended our gig at the Kimi Records label-night at Tunglið on Wednesday. We had fun, and the evening was a success.Tonight however, we're playing again, and this time we'll be...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Fri, 17 Oct 2008 11:12:00 PST

Kimi Records label night @ Iceland Airwaves

Mordingjarnir will be appearing on Kimi Records' label night at this year's Iceland Airwaves festival. The concert will be on Wednesday (that's next week folks) at Tunglid, Reykjavik and Mordingjarnir...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Fri, 10 Oct 2008 07:15:00 PST

Áfram Ísland!

Um leið og við óskum íslenska handboltalandsliðinu kærlega til hamingju með árangurinn í Peking viljum við deila með ykkur nýju lagi af plötunni okkar, Áfram Ísland! Það er að sjálfsögðu sjálft titill...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Fri, 22 Aug 2008 11:52:00 PST

Borko - Eiturlyfjafíklar (Morðingjakover)

Ja hérna hér......tékkiði á þessu: .....
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Mon, 11 Aug 2008 01:28:00 PST

Grein um Sumargleði Kima í Grapevine

Rock 'n' Responsibilities Some of Kimi Records' Roster Travelled the Country in Style Words by Haukur S. Magnússon Four left-field bands  Benni...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Thu, 07 Aug 2008 06:00:00 PST

Færðir til á Innipúkanum

Morðingjarnir hafa verið færðir yfir á laugardagskvöldið á Innipúkanum. Þeir opna kvöldið og hefja leik kl. 20:45. Svo eru það Geir Ólafs, Sprengjuhöllin, Dr. Spock, FM Belfast ofl. sem fylgja í kjölf...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Fri, 01 Aug 2008 05:57:00 PST

Innipúkinn og fleira

Næsta helgi er eins og margir vita sjálf Verslunarmannahelgin. Þessi helgi er vinsæl ferðahátíð, og ferðaglaðir Íslendingar drekka sig ógeðslega á tjaldsvæðum landsins. Það er þó einnig hægt að drekka...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Tue, 29 Jul 2008 07:40:00 PST

NASA búið - tónleikar framundan

Lokatónleikar Sumargleði Kimi Records fóru fram á NASA miðvikudagskvöldið sl. og það var þrælgaman. Mætingin slefaði upp í sæmilegheit og gestir voru í góðu stuði. Viljum við þakka öllum sem mættu.Í k...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Fri, 25 Jul 2008 07:12:00 PST

Landsbyggðarhluta Sumargleðinnar lokið

Við Morðingjarnir fórum hringinn um landið í síðustu viku ásamt hljómsveitunum Reykjavík!, Benna Hemm Hemm og Borko undir yfirskriftinni Sumargleði Kimi Records. Þetta var alveg svívirðilega gaman og ...
Posted by Morðingjarnir@Iceland Airwaves 2008 on Tue, 22 Jul 2008 07:04:00 PST