SUS profile picture

SUS

I am here for Serious Relationships

About Me

Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) er samband allra svæðisbundnu sjálfstæðisfélaga ungs fólks á aldrinum 15 til 35 ára. Félögin eru 38 talsins, þar af er Heimdallur í Reykjavík stærsta félagið, sem rekur vefinn frelsi.is. Um 11.000 ungir sjálfstæðismenn eiga aðild að sambandinu, sem var stofnað á Þingvöllum 27. júní árið 1930.
Sambandsþing eru haldin annað hvert ár í ágúst eða september þar sem formaður og 26 stjórnarmenn úr öllum kjördæmum landsins eru kjörnir til tveggja ára. Þess á milli eru haldin málefnaþing. Stjórnin hittist að jafnaði mánaðarlega. Framkvæmdastjórn, sem fer með daglegan rekstur sambandsins, kemur saman vikulega. Skrifstofa sambandins er í Valhöll við Háaleitisbraut 1.
SUS hefur í yfir 50 ár gefið út tímaritið STEFNI. Stefnir er tímarit um stjórnmál og þjóðmál og er eina rit sinnar tegundar sem enn kemur út á Íslandi.
SUS hefur ávallt tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi og á aðild að Nordisk Ungkonservativ Union (NUU), Democratic Youth Community of Europe (DEMYC), International Young Democrat Union (IYDU) og European Young Conservatives (EYC).
Myspace Layout Generator by TheMyspaceLayout.com